Hilmar Sigurjónsson hefur ákveðið að semja við Stjörnuna til eins árs og leika með liðinu í vetur á Íslandsmóti karla í blaki. Hilmar, sem var fyrirliði KA sem vann þrefalt sl. vetur, verður hins vegar ekki með liðinu fyrr en fyrsta lagi um jólin vegna meiðsla en hann er ennþá að ná sér af meiðslum sem hann hlaut í bílslysi í vor.