Hetjurnar fengu styrk

G. Ómar Pétursson formaður Arctic Open nefndarinnar afhendir Maríu Sigurðardóttir frá Hetjunum ávísu…
G. Ómar Pétursson formaður Arctic Open nefndarinnar afhendir Maríu Sigurðardóttir frá Hetjunum ávísunina.

Hetjurnar, félag aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, fengu afhenta ávísun upp á 626 þúsund krónur sem söfnuðust á Arctic Open golfmótinu sem fram fór á Jaðarsvelli um sl. helgi. Á hverju ári gefst keppendum mótsins kostur á því að styrkja gott málefni og að þessu sinni voru það Hetjurnar sem nutu góðs af því. Söfnunin fer þannig fram að keppendur leggja þúsund krónur undir á átjánda teig og hitti þeir flötina voru fyrirtæki á Akureyri tilbúinn að tvöfalda þá upphæð. Fyrirtækin voru Atlantsolía, Eimskip, Enor, Finnur ehf, Höldur, KEA, Slippurinn/DNG, Steypustöðin og Þekking.Vill Golfklúbbur Akureyrar koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem tóku þátt í þessari söfnun.

Nýjast