Hetjurnar, félag aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi, fengu afhenta ávísun upp á 626 þúsund krónur sem söfnuðust á Arctic Open golfmótinu sem fram fór á Jaðarsvelli um sl. helgi. Á hverju ári gefst keppendum mótsins kostur á því að styrkja gott málefni og að þessu sinni voru það Hetjurnar sem nutu góðs af því. Söfnunin fer þannig fram að keppendur leggja þúsund krónur undir á átjánda teig og hitti þeir flötina voru fyrirtæki á Akureyri tilbúinn að tvöfalda þá upphæð. Fyrirtækin voru Atlantsolía, Eimskip, Enor, Finnur ehf, Höldur, KEA, Slippurinn/DNG, Steypustöðin og Þekking.Vill Golfklúbbur Akureyrar koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem tóku þátt í þessari söfnun.