Hetjulundur vígður í gær
Það var Sr. Pálmi Matthíasson sem blessaði húsið að viðstöddum forsvarsmönnum SKB, Á allra vörum, styrktaraðilum, verktökum og félagsmönnum SKB. Að lokinni formlegri vígslu var opið hús fyrir félagsmenn. Góðgerðarfélagið Á allra vörum stóð fyrir sinni annarri landssöfnun árið 2009 með sölu á glossum og beinni sjónvarpsútsendingu en sú söfnun var tileinkuð hvíldarheimili fyrir SKB. Ár er síðan fyrsta skóflustungan var tekin að húsinu en það stendur í landi Ketilsstaða í Holta- og Landssveit. „Hér er að rætast stór draumur og það er ólýsanlegt fyrir okkur stöllur „Á allra vörum" að sjá hann verða að veruleika. Það er hægt að áorka flestu ef viljinn er fyrir hendi og samtaka kraftar taka sig saman", segir Gróa Ásgeirsdóttir ein forsvarskvenna á „Á allra vörum".