Heimsmeistaramót í Freeski og fyrsta Íslandsmeistaramótið á snjóbrettum

Iceland Winter Games (IWG) verður haldin dagana 24. mars – 3. apríl nk. og er undirbúningur fyrir hátíðina vel á veg kominn. Í tilkynningu frá mótshöldurum segir að á meðal þeirra sem hafa skráð sig til þátttöku á leikunum séu nokkrir af þekktustu og sigursælustu skíða- og snjóbrettamönnum heims. Má þar t.d. nefna hinn 24 ára gamla Svía Henrik Harlut, en hann var valinn skíðamaður ársins árin 2011 og 2013 (Freeskier Magazine) og besti skíðamaður Evrópu árið 2012 (International Freeski Film Festival). Hann hefur auk þess tvisvar sigrað stærsta skíða- og snjóbrettamóti heims, X-Games í Aspen (2013 og 2014), unnið European Open 2009 og keppt fyrir hönd Svía á Ólympíuleikunum í Sochi svo eitthvað sé nefnt. Aðrir þekktir atvinnumenn á skíðum og snjóbrettum sem hafa skráð sig til þátttöku á eru t.a.m. hinn finnski Antti Autti og Scotty Lago (USA). Scotty Lago á glæstan feril að baki. Brons verðlaunahafi á Ólympíleikunum í Sochi,unnið 4 sinnum til verðlauna á X – Games í Aspen,og hefur verið atvinnumaður á snjóbrettum frá 12 ára aldri.

og Phil Casabon (CAN) hefur einnig staðfest þáttöku sína. Aðalviðburðir hátíðarinnar eru AFP heimsmeistaramót í Freeski, alþjóðlega IWG Open snjóbrettamótið og fyrsta Íslandsmeistaramótið á snjóbrettum.Viðburðirnir verða haldnir í Hlíðarfjalli dagana 31. mars – 2. Apríl. Heimsmeistarmótið í Freeski fór fyrst fram á IWG í mars 2014 og markaði sú keppni upphafið að Iceland Winter Games. Freeski heimsmeistaramótið er hluti af AFP mótaröðinni (The  AFP World Tour) og er flokkað sem gullmót, en það er er næst efsta stig í þeirri mótaröð með heildarverðlaunafé upp á tæpar 3 milljónir króna.

Nýjast