Heimildarmyndin Jón og séra Jón endursýnd í Hofi
Vegna fjölda áskoranna verður heimildarmyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson endursýnd í Hofi, í kvöld kl. 20.00. Séra Jón Ísleifsson hefur verið sóknarprestur í Árnesi Ströndum í 12 ár. Hann lifir lífinu á sinn eigin sérstæða máta og af honum eru margar sögur bæði sannar og ósannar.
Í kjölfar langvinnra deilna innan safnaðarins er svo komið að mikill meirihluti sóknarbarna hefur skrifað undir vantraust á séra Jón og lýst því yfir að þau vilji ekki að hann starfi lengur sem sóknarprestur í Árnesprestakalli. Er séra Jón óhæfur prestur? Eða eru aðrir kraftar að verki? Hvað sem því líður er séra Jón maður sem er staddur á miklum tímamótum. Myndin hlaut áhorfendaverðlaun Skjaldborgar í ár.