Hátt í þúsund manns mæta á árshátíð MA

Árshátíð Menntaskólans á Akureyri fram í Íþróttahöllinni á Akureyri föstudaginn 3. desember. Hátíðin er glæsileg og er allur undirbúningur hennar í höndum nemendra sjálfra og tekur nokkrar vikur, þegar allt er talið. Tugir nemenda vinna að skreytingum og margir hópar nemenda vinna að því að semja og æfa alls kyns skemmtiefni, hljóðfæraleik, dans, söng og leik.   

Aðrir hópar sjá um að skipuleggja veislusalinn í Höllinni, leggja á borð og skreyta og tæknimenn sjá til þess að allir fái notið þess sem í boði verður.  Öll þessi störf eru undir regnhlíf stjórnar Hugins, skólafélags MA.  Formaður Hugins, Inspector Scholae, er Óli Dagur Valtýsson. Hátt í þúsund manns, nemendur, kennarar og starfsfólk, munu mæta í hátíðarbúningi í Höllina og njóta kvöldsins saman.  Vetinigahúsið Bautinn sér um matinn, en nemendur sjá um að þjóna til borðs, leika tónlist undir borðum og flytja skemmtidagskrá.  Kvöldinu lýkur svo með dansleik en þar leikur hljómsveitin Ný Dönsk fyrir dansi í aðalsal, en Þuríður formaður og hásetarnir leika fyrir gömlum dönsum á efri hæðinni.

Árshátíð MA er ein stærsta vímulausa hátíð sem haldin er árlega á Íslandi.  Hugtakið vímulaus hátíð þýðir í Menntaskólanum á Akureyri að þátttakendur hvorki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á hátíðinni né koma þangað eftir að hafa neytt þeirra annars staðar.  Það er fréttnæmt og hlýtur að teljast til góðra frétta.  Góðar fréttir af ungu fólki eru ekki síður fréttir en þegar einhver vandræði koma upp.  Nemendur MA telja það forréttindi að fá tækifæri til að njóta vímulausrar stórhátíðar þegar eðlilegt er talið að fólk á þessum aldri skemmti sér með öðru móti.

Nýjast