Þeir verða kraftmiklir, ungir og fallegir tónarnir sem munu fylla miðbæ Akureyrar föstudagsmorguninn 16. mars milli klukkan 10 og 11 en þá koma saman í göngugötunni, neðst í stöllunum í Skátagilinu, hátt í 1500 leik- og grunnskólanemendur á Akureyri. Yfirskrift þessa skemmtilega uppátækis er Söngdagar og verður þetta endurtekið á sama tíma föstudaginn 23. mars. Söngdagarnir eru skipulagðir af starfsfólki leik- og grunnskóla Akureyrar og eru haldnir í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins en sjálfur afmælisdagurinn er 29. ágúst. Staðið hafa yfir miklar æfingar í skólunum síðustu mánuði þar sem tónstiginn hefur komið að góðum notum í upphituninni. Krakkarnir munu hefja upp raust sína með lögum á borð við Akureyri og norðrið fagra, Snert hörpu mína og Krummi svaf í klettagjá.
Þeir sem eiga leið um miðbæinn á þessum tíma eru hvattir til að staldra við og hlýða á sönginn, segir í fréttatilkynningu frá Akureyrarstofu.