Háskólahátíð á morgun
Á morgun, laugardaginn 11. júní kl. 10:30 fer fram brautskráning frá Háskólanum á Akureyri. Brautskráningin verður í Íþróttahöllinni.Háskólaárið 2010-2011 stunduðu um 1500 nemendur nám á þremur fræðasviðum við Háskólann á Akureyri. Skipting kandídata eftir því hvort þeir voru í staðarnámi, fjarnámi eða lotunámi var eftirfarandi:
Staðarnemar 171
Fjarnemar 61
Lotunemar 194
Í ár verða 426 kandídatar brautskráðir á háskólahátíðinni. Af þessum hópi hafa margir stundað fjarnám fyrir milligöngu háskólasetra og símenntunarmiðstöðva víða um land.
Skipting kandídata eftir fræðasviðum er eftirfarandi: Heilbrigðisvísindasvið: 72Hug- og félagsvísindasvið: 271
Viðskipta- og raunvísindasvið: 83 Konur eru í miklum meiri hluta þeirra sem munu brautskrást eða 316 á móti 110 körlum.
Að lokinn brautskráningu bjóða Stefán B. Sigurðsson rektor og Góðvinir, félag brautskráðra nemenda við háskólann til móttöku í hátíðarsal háskólans að Sólborg þar sem fram fer afhending styrkja úr Háskólasjóði KEA auk þess sem fulltrúi 20 ára afmælisárgangs HA mun flytja ávarp.