Á aðalsafnaðarfundi Lögmannshlíðarsóknar sem haldinn var í Glerárkirkju í gær, sunnudaginn 22. maí, var samþykkt
ályktun þar sem harmaður er sá róttæki og ósanngjarni niðurskurður á sóknargjöldum sem orðið hefur á hinum
síðustu árum. Fundurinn varar við því að frekari niðurskurður muni koma alvarlega niður á þjónustu við alla þá
aldurs- og þjóðfélagshópa sem til kirkjunnar leita og þiggja þjónustu hennar.
Minnt er á að sóknargjöld eru félagsgjöld í eðli sínu sem renna jafnt til safnaða þjóðkirkjunnar sem og annarra
skráðra trúfélaga og standa undir grunnþjónustu þeirra og mynda þar með mikilvægan þátt í velferðaruppbyggingu
samfélagsins. Fundurinn hvetur háttvirt Alþingi til þess að sporna við því að til frekari niðurskurðar komi.