Harðari kröfuaðgerðir blasa við
Á fundi í stjórn-og trúnaðarráði Félags verslunar-og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni í vikunni var skorað á ríkisstjórn Íslands að endurskoða fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2015 með hliðsjón af þeirri gagnrýni sem frumvarpið hefur fengið frá samtökum launafólks undanfarið. Í ályktun kemur fram að þau atriði sem einkum eru gerðar athugasemdir við eru hækkun lægra þreps virðisaukaskatts úr 7% í 12%, skerðingu réttar til atvinnuleysisbóta, að ekki verði staðið við gefin fyrirheit um framlag til Virk Starfsendurhæfingasjóðs, skerðingu framlaga til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða og skert framlög til mennta-, heilbrigðis- og vinnumarkaðsmála.
Ljóst sé að ef ofangreind atriði verða samþykkt óbreytt verða launþegasamtökin að efna til harðari kröfugerðar gagnvart atvinnurekendum en reiknað var með til að rétta hlut þeirra sem minnst hafa.