Handverkshátíð og Landbúnaðarsýning hefjast í dag að Hrafnagili
Það verður án efa glatt á hjalla og margt um manninn á Handverkshátíðinni og landbúnaðarsýningunni að Hrafnagili sem opnar í dag og verður fram á sunnudag. Forseti Íslands herra Guðni Th. Jóhannesson og forsetafrúin Eliza Reid heimsækja hátíðina á morgun og verða þar um hádegisbil.
Hátíðin, sem nú er haldin í 24. sinn er að venju fjölbreytt þar sem handverksfólk alls staðar að af landinu sýnir handverk sitt en um sölusýningu er að ræða.
Að þessu sinni er einnig landbúnaðarsýning á Hrafnagili og því ljóst að allir fjölskyldumeðlimir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á sýningarsvæðinu. Teymt verður undir börnum alla dagana, húsdýr verða til sýnis auk þess sem boðið verður upp á listasmiðju fyrir börn á laugardaginn. Þá er hið rómaða kaffihús ungmennafélagsins Samherja og björgunarsveitarinnar Dalbjargar á sínum stað. Veðurspáin fyrir helgina er góð og því upplagt að fá sér bíltúr inn í Eyjafjörð um helgina.