Hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa hf. árið 2013 nam 138 m.kr. Félagið hefur skilað hagnaði óslitið frá árinu 2002. Eigið fé félagsins nam 591 m.kr. í árslok 2013 og eiginfjárhlutfall, reiknað samkvæmt 84. grein laga um fjármálafyrirtæki, var í árslok 35,5%.
Sveinn Torfi Pálsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir í tilkynningu niðurstöðuna ánægjulega. Ég er ánægður með afkomu félagsins á árinu 2013 og yfirstandandi ár leggst vel í mig. Eignir í stýringu námu 112 milljörðum króna í árslok og ávöxtun eignasafna í umsjá félagsins var með besta móti.