Gunnar framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar

Gunnar Gunnarsson.
Gunnar Gunnarsson.

Gunnar I. Gunnsteinsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra hjá Menningarfélagi Akureyrar. Í fréttatilkynningu kemur fram að Gunnar hafi starfað sem framkvæmdastjóri Bandalags Sjálfstæðu leikhúsanna og Tjarnarbíós undanfarin ár. Jafnframt hefur hann starfað sem leikari, leikstjóri og framleiðandi til fjölda ára og m.a. sett upp Ávaxtakörfuna, Benedikt búálf og Baneitrað samband á Njálsgötunni ásamt því að skrifa nokkur leikrit.

"Gunnar ætti ekki að vera Akureyringum ókunnur, en hann er fæddur og uppalinn á Akureyri og stundaði nám við VMA á sínum yngri árum. Hann er útskrifaður leikari frá Leiklistarskóla Íslands og með MA í stjórnun menningar- og menntastofnana frá Háskólanum á Bifröst ásamt diplómu í markaðs- og útflutningsfræðum. Gunnar hefur aðallega starfað með stjálfstæðum hópum en einnig með helstu sviðslistastofnunum landsins s.s. Þjóðleikhúsinu og Íslensku óperunni," segir ennfremur i tilkynningu.

Nýjast