Guðbjörg sýnir á Dalvík
Guðbjörg Ringsted opnar sýningu á málverkum í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík á laugardaginn kemur kl. 14:00. Þetta er 30. einkasýning Guðbjargar og eru sex ár síðan hún sýndi síðast á Dalvík. Þema málverkanna eru útsaumsmunstur af íslenska kven- þjóðbúningnum en í meðförum listakonunnar öðlast munstrin sitt eigið líf. Þau ýmist standa kyrrlát eða flögra um á myndfletinum. Frelsisþráin kemur einnig við sögu; löngunin til að slíta sig úr viðjum vanans. Sýningin í Bergi stendur til 2.október.