Greifinn aftur í hendur Akureyringa

Veitingahúsið Greifinn á Akureyri. Mynd: Greifinn.is
Veitingahúsið Greifinn á Akureyri. Mynd: Greifinn.is

Veitingastaðurinn Greifinn á Akureyri hefur verið í eigu stórfyrirtækisins Foodco frá árinu 2007. Foodco er risi á veitingamarkaðinum á Íslandi en fyrirtækið á um 20 veitingastaði víða um landið þar á meðal Roadhouse, Saffran, Eldsmiðjuna og American Style.

Sjá einnig: Pizzameistarinn sem byggir blokkir

Vefmiðillinn Kaffið.is sagði frá því í dag að Foodco hafi tekið ákvörðun um að selja staðinn. Fram kemur að starfsmönnum Greifans hafi verið tilkynnt þetta á jólagleði þeirra í gær. Akureyringurinn Arinbjörn Þórarinsson framkvæmdastjóri Greifans mun taka yfir rekstur veitingastaðarins eftir að kaupin á Foodco ganga í gegn.

Nýjast