Gleðilega kirkju!

Dr. Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Þjóðkirkjan er á tímamótum og kosning biskups í mars verður öðruvísi en allar kosningar biskupa hingað til. Það verða ekki aðeins prestar sem kjósa, heldur meira en 500 manna hópur ábyrgðarfólks í kirkjunni. Stærsti hluti kjörmana eru formenn sóknarnefnda. Ég óska þeim til hamingju með kosningaréttinn og hvet þau til að nýta sér hann og kjósa vel. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í biskupskjöri til að beita mér fyrir að kirkjan sæki fram og endurskoði sífellt starf sitt í samræmi við þarfir samtímans. Mér er í mun að efla kirkjustarf í þágu barna og ungmenna. Tryggja þarf fjárhag sókna og hlúa að prestum og starfsfólki kirkjunnar. Glatt fólk þjónar vel.

Störf og verk

Ég hef þjónað sem prestur í sveit og borg og starfað við kirkjulega stjórnsýslu. Ég var rektor Skálholtsskóla og breytti starfi hans í menningarmiðstöð kirkjunnar. Eftir fræðslustarf á Þingvöllum stýrði ég landsátaki þjóðkirkjunnar í safnaðaruppbyggingu og var síðan verkefnisstjóri guðfræði og þjóðmála á Biskupsstofu. Ég sit á kirkjuþingi og er varafulltrúi í kirkjuráði. Síðustu átta ár hef ég verið prestur í stórum og líflegum Nessöfnuði í Reykjavík. Ég hef áhuga á nútímamiðlun og birti ræður mínar og greinar gjarnan á vefnum. Ég er hamingjumaður í einkalífi, á fimm börn á aldrinum 6 – 27 ára. Kona mín er Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur. Ég er fjárhagslega, pólitískt og félagslega óháður. Vefurinn www.sigurdurarni.is er ítarleg upplýsingalind.

Biskup í tengslum

Ég virði en hræðist hvorki andóf gegn kirkju né trúargagnrýni. Áskoranir ögra og kalla á frjóa guðfræði. Kirkjan má ekki einangrast, heldur vera lífleg og tala frjáls á götum og torgum mannlífs, miðla gildum og beita sér til góðs í réttlætismálum samfélagsins.

Kirkjulífið á að vera til upplífgunar, til trúar á Guð og elskuríkrar þjónustu við menn. Möguleikar kirkjunnar eru miklir og heillandi. Ég býð mig fram til að þjóna, sætta og hvetja þjóðkirkjufólk til sóknar. Gleðilega kirkju.

Höfundur gefur kost á sér í biskupskjöri.

Nýjast