Gengið til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini á sunnudag
Öll vinna við undirbúning og framkvæmd er unnin af sjálfboðaliðum og margir leggja hönd á plóg um land allt. Félagið hefur staðið fyrir slíkum fjáröflunargöngum frá árinu 2007 og frá árinu 2008 hefur verið gengið á Akureyri en þar er jafnframt starfandi gönguhópur sem gengur vikulega allan ársins hring. Í ár verður gengið frá hátíðarsvæðinu í Kjarnaskógi , ofan við aðal leiksvæðið og verða þrjár vegalengdir í boði; 2.2 km, 4 km og 6 km.
Göngum saman á rætur í grasrótarstarfi 22ja kvenna sem tóku þátt í Avon göngu í New York í október 2007 en þar var gengið til fjáröflunar fyrir rannsóknir og meðferð á brjóstakrabbameini. Upphafsmaður er dr. Gunnhildur Óskarsdóttir en hún greindist með brjóstakrabbamein fyrir rúmum áratug síðan. Í september 2007 var styrktarfélagið Göngum saman formlega stofnað og stefnan sett á að veita árlega rannsóknarstyrki. Fjöldi félaga nálgast nú fjórða hundraðið.
Í október mun Göngum saman veita íslenskum rannsóknaraðilum styrki að fjárhæð kr. 5.000.000. Þetta er fimmta árið sem félagið veitir styrki en frá stofnun hefur Göngum saman úthlutað alls 17 milljónum króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Hópurinn hefur lagt áherslu á gildi hreyfingar og eru göngur jafnan ríkur þáttur í fjáröflun félagsins. Göngur eru ekki einungis fjáröflunarleið, félagsmenn ganga saman vikulega sér til heilsubótar víða um land og eru göngurnar auglýstar á heimasíðu félagsins.
Styrktargangan í september er helsta fjáröflunarleiðin og mikilvægt að sem flestir taki þátt. Brjóstakrabbamein snertir fleiri en þá sem greinast og líklega er vandfundinn sá Íslendingur sem sjúkdómurinn hefur látið ósnortinn. Á Íslandi fer nú fram öflugt rannsóknarstarf sem vert er að styrkja.