Geðverndarfélagið fagnar 40 ára afmæli

Geðverndarfélag Akureyrar og nágrennis fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Geðverndarfélagið hefur verið brautryðjandi í að hjálpa fólki með geðraskanir á Norðurlandi og hefur beitt sér fyrir úrræðum eins og Lautinni, áfangaheimilum og Grófinni geðverndarmiðstöð. Haldið verður upp á áfangan í dag, mánudag, kl 16:00 í Grófinni í Hafnarstræti 95. Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir og formaður GVA flytur erindi um sögu félagsins, Gísli Magnússon notandi Grófarinnar mun flytja nokkur lög á blokkflautu og Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar flytur ávarp. 

Nýjast