Fyrirtæki semja fyrir norðan

Um síðustu helgi var gengið frá nýjum kjarasamningum við fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu og nágrenni og eru nokkur fyrirtæki að hugsa sinn gang. Þetta kemur fram á heimasíðu Einingar-Iðju stéttarfélags. Þar segir að á undanförnu hafi fjölmörg fyrirtæki haft samband við Einingu-Iðju með áhuga á að gera nýjan kjarasamning við félagið eða þá til að kynna sér málin.

Í þeim samningum sem búið er að skrifa undir hafi verið gengið að ýtrustu kröfugerð Starfsgreinasambandsins.

"Vert er að nefna að ekkert fyrirtækjanna er innan Samtaka atvinnulífsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, hefur sagt að hann telji samninga sem þessa marklausa þar sem aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins hafi framselt samtökunum samningsumboð sitt," segir á heimasíðu Einingar-Iðju.

Nýjast