Það er víðar en á Landspítalanum sem grípa þarf til óvenjulegra aðferða við að koma sjúklingum fyrir vegna plássleysis.
Lyflækningadeildin á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) er yfirfull með reglulegu millibili og eru sjúklingar þá lagðir inn á skurðdeild eða jafnvel barnadeild spítalans. Algjört neyðarúrræði sé að sinna sjúklingum á göngum spítalans. Þetta segir Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóra lækninga á SAk í samtali við mbl.is.
Hann segir starfsfólk hafa þurft á stundum að sýna hugmyndaflug til að koma öllum fyrir „Það hafa komið tímabil í haust þar sem það hefur verið þungt og mikið álag á spítalanum, sérstaklega á lyflækninga- og skurðlækningadeildinni,“ segir Sigurður
Hann segir jafnframt að komið hafi fyrir að lyflækningasjúklingar hafi lagst inn á skurðlækninga- eða barnadeild, „enda reynum við frekar að gera það en að setja sjúklinga á gangana. Það er algjört neyðarúrræði, enda held ég að það séu allir sammála um að ekki eigi að sinna veikum sjúklingum á göngum nema brýna nauðsyn beri til,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is