FSHA styður LÍN frumvarp Illuga

Illugi Gunnarsson, Menntamálaráðherra heimsótti Háskólann á Akureyri á dögunum ásamt aðstoðarmanni sínum Jóhannesi Stefánssyni.
Tilgangur heimsóknarinnar var að funda með framkvæmdastjórn Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA) um einstök atriði LÍN frumvarpsins.
Í tilkynningu á heimasíðu félagsins kemur fram að ýmsum vafaatriðum varðandi frumvarpið hafi verið svarað og jafnframt hafi framkvæmdastjórnin getað komið áhersluatriðum sínum beint til skila. „Það atriði sem vafðist hvað mest fyrir stúdentum hefur verið tekið til athugunar og tökum við því fagnandi,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að niðurtöður útreikninga FSHA séu sambærilegar við útreikninga Stúdentaráðs Háskóla Íslands þ.e. að nýtt kerfi kæmi til með að bæta kjör u.þ.b. 85% stúdenta. „Þrátt fyrir að það séu einstök atriði í frumvarpinu sem betur mættu fara, og verði baráttumál stúdenta í framtíðinni, býður nýtt kerfi upp á betri kjör meiri hluta nemenda. Þar má nefna 100% framfærslu og beina styrki í stað þess að nemendur þurfi eingöngu að framfleyta sér á lánum. Í ljósi þeirra niðurstaða styður FSHA heilshugar við nýtt frumvarp um námslán og námsstyrki,“ segir jafnframt í tilkynningunni.