04. apríl, 2011 - 10:46
Fréttir
Framkvæmdir eru hafnar við gerð sjóvarnargarðs á Hjalteyri. Byggður verður grjótgarður sunnan og austan á eyrinni, alls um 600 metra
að lengd. Í miklu suðaustan veðri í febrúar 2008 flæddi inn yfir eyrina. Þá urðu þá talsverðar skemmdir á
mannvirkjum og mátti raunar litlu muna að stórtjón yrði.
Verktaki við framkvæmdina er Árni Helgason ehf. á Ólafsfirði en fyrirtækið átti lægsta tilboð í verkið, tæpar 11,9
milljónir króna, eða 63,5% af kostnaðaráætlun. Alls bárust átta tilboð í verkið og voru sjö þeirra undir
kostnaðaráætlun.