14. apríl, 2014 - 22:10
Fréttir
Framboðslisti L-listans, bæjarlista Akureyrar, fyrir sveitastjórnarkosningar 2014 var samþykktur á fjölmennum fundi í kvöld með lófaklappi.
Nýr oddviti L-listans er Matthías Rögnvaldsson, 42 ára gamall kerfisfræðingur frá Akureyri. Hann er kvæntur Erlu Jóhannesdóttur, hjúkrunarfræðingi og saman eiga þau fimm börn. Matthías er framkvæmdastjóri og stofnandi Stefnu hugbúnaðarhúss ehf. Hann hefur einnig gengt ýmsum nefndarstörfum fyrir Akureyrarbæ ásamt því að vera einn af skipuleggjendum Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar.
Listinn er sem hér segir:
- Matthías Rögnvaldsson Framkvæmdastjóri, 42 ára
- Silja Dögg Baldursdóttir Markaðsfulltrúi, 31 árs
- Dagur Fannar Dagsson Hugbúnaðarráðgjafi, 35 ára
- Tryggvi Þór Gunnarsson Bæjarfulltrúi/ Sölumaður, 48 ára
- Eva Reykjalín Viðskiptafræðingur/ Danskennari, 38 ára
- Hólmdís Benediktsdóttir Leikskólakennari, 41 árs
- Jóhann Gunnar Sigmarsson Deildarstjóri, 33 ára
- Víðir Benediktsson Skipstjóri/ Blikksmiður, 54 ára
- Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir Nemi, 20 ára
- Ágúst Torfi Hauksson Ráðgjafi, 40 ára
- Geir Kr. Aðalsteinsson Rekstrarstjóri, 39 ára
- Birna Baldursdóttir Íþróttafræðingur, 33 ára
- Inda Björk Gunnarsdóttir Bæjarfulltrúi/ Leikskólastjóri, 43 ára
- Þorvaldur Sigurðsson Netagerðarmaður, 39 ára
- Dusanka Kotaras Matráður, 47 ára
- Ingimar Ragnarsson Verkstjóri, 47 ára
- Dagný Þóra Baldursdóttir Iðjuþjálfi, 38 ára
- Rósa Matthíasdóttir Jógakennari, 39 ára
- Halldór Kristinn Harðarson Nemi, 20 ára
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir Rekstrarfræðingur, 48 ára
- Sigurður Guðmundsson Verslunarmaður, 45 ára
- Oddur Helgi Halldórsson Bæjarfulltrúi/ Atvinnurekandi, 55 ára