Fram hefur komið að Linda Pétursdóttir er að íhuga að fara í framboð til embættis forseta Íslands, enda hafi ýmsir hvatt hana til að gefa kost á sér. Linda er ættuð úr Flatey á Skjálfanda og frá Húsavík þar sem hún sleit barnsskónum.
Hrannar Pétursson, sem fæddist og ólst upp á Húsavík, hefur einnig verið að velta fyrir sér forsetaframboði. Þetta er auðvitað í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, enda vitað að fjöldinn allur af hæfileikaríku sómafólki hefur vaxið úr grasi á Húsavík. Hitt telst hinsvegar til tíðinda, ef svo fer að þau Linda og Hrannar gefa bæði kost á sér, að þau eru náskyld, nefnilega þremenningar. Ragnheiður Jónasdóttir amma Lindu og Skarphéðinn, afi Hrannars, voru sem sé systkini, en þau voru börn Kristjönu og Jónasar keyrara Bjarnasonar.
Öruggt má teljast að svo nánir ættingjar hafi ekki áður tekist á í forsetakjöri, ef sú verður niðurstaðan. A.m.k. ekki ef allir frambjóðendur til þessa hafa verið kórrétt feðraðir. JS