Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona frá UFA, vann allar þær fimm greinar sem hún keppti í Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem haldið var um helgina í Laugardalshöll. Lið UFA bar sigur úr býtum í kvennaflokki í 4x400 m boðhlaupi þar sem Hafdís hljóp lokasprettinn, en auk þess vann hún einstaklingsverðlaun í 60, 200 og 400 m hlaupi og langstökki. Með henni í sigursveit UFA í boðhlaupinu voru Agnes Eva Þórarinsdóttir, Heiðrún Dís Stefánsdóttir og Rakel Ósk Björnsdóttir.
Nánar verður fjallað um MÍ í Vikudegi á fimmtudaginn.