Formaður Framsýnar í stjórn Fiskifélags Íslands

Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar við bryggjuna á Húsavík. Mynd: Framsýn
Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar við bryggjuna á Húsavík. Mynd: Framsýn

Aðalfundur Fiskifélags Íslands fór fram síðasta föstudag í Reykjavík. Fiskifélagið er sameiginlegur samstarfsvettvangur samtaka í sjávarútvegi með það að markmiði að auka veg og virðingu íslensks sjávarútvegs, efla hag greinarinnar og stuðla að framförum í íslenskum sjávarútvegi. Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjavík. Alls eru níu fulltrúar í stjórn Fiskifélagsins frá samtökum sjómanna, landverkafólks og SFS, samstökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Auk þess er einn áheyrnarfulltrúi frá samtökum sjómanna.

Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar sem jafnframt var fundarstjóri þingsins, hlaut kjör í stjórn sambandsins. Hann flutti einnig um starfsmenntun í fiskvinnslu sem þótti fá mjög góð viðbrögð. /epe

Nýjast