Fordæma ruddaskap stjórnvalda varðandi framlög til heilbrigðismála
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum; Framsýn- stéttarfélag, Starfsmannafélag Húsavíkur og Þingiðn- félag iðnaðarmanna funduðu í dag um boðaðar tillögur fjárlaganefndar Alþingis um verulegar skerðingar á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Mikil reiði var meðal fundarmanna. Stéttarfélögin samþykktu að senda sameiginlega frá sér ályktun um málið, þar sem ruddaskapur stjórnvalda varðandi framlög til heilbrigðismála er fordæmdur.
Ályktun um boðaðan niðurskurð á fjárveitingum til HÞ:
Enn á ný sjá stjórnvöld ástæðu til að ráðast að grunnstoðum atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum með ruddaskap. Boðaðar tillögur Fjárlaganefndar Alþingis gera ráð fyrir skerðingum á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga um 71,6 m.kr. eða um 8,5% á árinu 2012. Þessi viðbótarskerðing er boðuð þrátt fyrir að mjög fast hafi verið sótt að rekstri þessarar mikilvægu stofnunar á undanförnum árum. Forsvarsmenn og starfsmenn hafa gert allt til að bregðast við lækkandi framlögum til rekstrar með hagræðingu og aðhaldi í rekstri. Að mati stéttarfélaganna verður ekki lengra komist í sparnaði nema það sé markmið núverandi stjórnvalda að ganga endanlega frá starfsemi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga með lokun. Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum krefjast þess að stjórnvöld leggi tillögurnar þegar í stað til hliðar, þar sem þær ógna mjög alvarlega heilbrigðisöryggi og þar með búsetuskilyrðum í Þingeyjarsýslum.
Að gefnu tilefni vilja stéttarfélögin minna á viljayfirlýsingu ríkistjórnar Íslands og sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum um uppbyggingu atvinnulífs í sýslunum, sem undirrituð var 25. maí 2011. Þar stendur orðrétt; Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að staðinn verði vörður um opinbera þjónustu á svæðinu, sem nauðsynleg er þegar til uppbyggingar kemur." Stéttarfélögin krefja stjórnvöld um skýringar á orðalaginu í viljayfirlýsingunni í ljósi tillögu fjárlaganefndar sem gengur út á að lama starfsemi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Öflug heilbrigðisþjónusta á svæðinu er ein af megin forsendum þess að öflugt atvinnulíf þrífist í Þingeyjarsýslum og því kemur ekki til greina að veikja þjónustuna frá því sem nú er, segir í ályktuninni.