Ég var svo heppin að fá tækifæri til þess að sitja Þjóðfund um Stjórnarskrá sem haldinn var nú um liðna helgi.
Óhætt er að segja að öll umgjörð fundarins hafi verið til fyrirmyndar enda var fyrirkomulagið skilvirkt og lausnarmiðað, og allt það fólk sem tók þátt var virkt í sinni vinnu. Á fundinum höfðu allir tækifæri til þess að koma sínum hugmyndum á framfæri en einnig höfðu þátttakendur tækifæri til þess að heyra nýjar hugmyndir fæðast, vega þær og meta.
Það kom sterklega fram á fundinum að fólkið í landinu vill breytingar fyrir framtíðina. Gildi sem lúta að jafnrétti, heiðarleika, mannréttindum, réttlæti, lýðræði, virðingu, frelsi og ábyrgð voru yfir og allt um kring í huga þátttakenda og urðu að grunngildum nýrrar stjórnarskrár.
Fólkið í landinu vill að stjórnarskráin sé sáttmáli sem tryggir fullveldi og sjálfstæði Íslendinga og sé
skrifuð fyrir fólkið í landinu en samkvæmt lögum um stjórnlagaþing nr. 90/2010 skal stjórnlagaþing sérstaklega taka til
umfjöllunar eftirfarandi þætti:
1. Undirstöður íslenskrar stjórnskipunar og helstu grunnhugtök hennar.
2. Skipan löggjafarvalds og framkvæmdarvalds og valdmörk þeirra.
3. Hlutverk og stöðu forseta lýðveldisins.
4. Sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvalds.
5. Ákvæði um kosningar og kjördæmaskipan.
6. Lýðræðislega þátttöku almennings, m.a. um tímasetningu og fyrirkomulag
þjóðaratkvæðagreiðslu, þar á meðal um frumvarp til stjórnskipunarlaga.
7. Framsal ríkisvalds til alþjóðastofnana og meðferð utanríkismála.
8. Umhverfismál, þar á meðal um eignarhald og nýtingu náttúruauðlinda.
Óhætt er að segja að á Þjóðfundurinn hafi tekið til umfjöllunar alla þessa þætti og því verður að tryggja að Stjórnlagaþing taki tillit til vilja Þjóðfundar.
Ég hef lagt áherslu á að Stjórnlagaþingið haldi áfram að móta þær meginhugmyndir sem fram koma á Þjóðfundi en mínar hugmyndir mótast af gildum íslensks samfélags. Stjórnarskráin á að vera grunnur sem lýðveldið Ísland byggir á.
Frekari hugleiðingar má finna á: https://annakolbrun.wordpress.com/
og einnig á: http://www.facebook.com/profile.php?id=1494095199#!/pages/Anna-Kolbrun-a-Stjornlagabing/151558524886403
Höfundur er frambjóðandi til stjórnlagaþings nr. 3073.