Flugvöllurinn úr Vatnsmýri, ein útfærsla

Mynd 5.  Áfangi 4.  A-V brautin framlengd enn frekar til vesturs og allt flug komið úr Vatnsmýrinni.
Mynd 5. Áfangi 4. A-V brautin framlengd enn frekar til vesturs og allt flug komið úr Vatnsmýrinni.

"Greiðar samgöngur til Reykjavíkur eru mikilvægar samfélaginu á Akureyrarsvæðinu.  Sama má segja um aðrar landsbyggðir.  Flugið er hluti af þessum samgöngum.  Ef flugvöllurinn verður tekinn úr Vatnsmýrinni  þarf fyrst að finna honum annan stað sem tryggir að þessi þáttur samgangna til og frá höfuðborginni versni ekki að ráði.  Aðstæður á Hólmsheiði virðast ekki nægjanlega góðar og  Keflavík er of langt í burtu frá Reykjavík.  Ef innanlandsflug yrði rekið frá Keflavík yrði umtalsverð sóun í akstri  og viðbótarfluglengd," skrifar Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við Háskólann á Akureyri. Hann skipar sjötta sæti á framboðslista Bjartrar framtíðar á Akureyri.

"Hvaða kostir eru þá eftir?  Vandamálið við flugvallarumræðuna er að ekki hefur verið gerð fullnægjandi skoðun á þeim.  Umræðan hefur nær eingöngu snúist um hvort flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni eða fari, bara eitthvað.  Ýmsar útfærslur eru til sem losa Vatnsmýrina við flugvöll en tryggja samt sem áður jafn góðar samgöngur og nú.  Flugvöllur á Bessastaðanesi eða á Lönguskerjum eru dæmi um þetta."


Öll greinin og myndir

Nýjast