Þau sem ljúka nú starfsævinni hjá félaginu eru: Baldur Þorsteinsson, flugstjóri, sem á tæplega 36 ára starfsaldur að baki, Guðmundur Björnsson hlaðmaður sem starfaði í 32 ár og Unnur Kristinsdóttur sem á að baki tæplega 50 ár í starfi. Það er mikil gæfa fyrir Flugfélag Íslands að hafa á að skipa jafn traustum og áreiðanlegum starfsmönnum og raun ber vitni, segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Eftir hófið á Reykjavíkurflugvelli mun Baldur flugstjóri svo halda í sína síðustu flugferð á vegum Flugfélags Íslands og lenda á heimavelli, Akureyrarflugvelli, seinni partinn í dag, þar sem tekið verður á móti honum með viðhöfn.