Fjórtán vilja starf fræðslustjóra

Fjórtán manns sóttu um starf fræðslustjóra hjá Akureyrarbæ sem auglýst hefur verið laust til umsóknar. Konur eru í miklum meirihluta eða tíu umsækjenda. Gengið verður frá ráðningu í starfið innan tíðar. Gunnar Gíslason gegndi stöðu fræðslustjóra en sagði upp störfum eftir að hann náði kjöri í bæjarstjórn Akureyrar. Þau sem sóttu um starfið eru:

Arnfríður Aðalsteinsdóttir, sérfræðingur, Akureyri

Bjarni Guðmundsson, menntaskólakennari, Akureyri

Eydís Aðalbjörnsdóttir, kennari, Reykjavík

Geir Hólmarsson, kennari, Akureyri

Hildur Betty Kristjánsdóttir, verkefnastjóri, Akureyri

Hildur Gylfadóttir, sviðsstjóri, Dalvík

Hrafnhildur S. Sigurgeirsdóttir, kennari og gæðastjóri, Akureyri

Íris Helga Baldursdóttir, skólastjóri, Hafnarfjörður

Kristín Jóhannesdóttir, skólastjóri, Akureyri

Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, þýðandi, Akureyri

Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri, Reykjavík

Soffía Vagnsdóttir, skólastjóri, Bolungarvík

Valgeir Jens Guðmundsson, deildarstjóri, Reykjavík

Þuríður Óttarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, Hafnarfirði

Nýjast