Fjölbreytt dagskrá á Einni með öllu

Notaleg stemning hefur ávallt skapast á Sparitónleikum Einnar með öllu.
Notaleg stemning hefur ávallt skapast á Sparitónleikum Einnar með öllu.

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta dagskrá og að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hefst fimmtudaginn 31. júlí næstkomandi með fimmtudagsfílingi N4 í formi útitónleika í Skátagililnu og nær hámarki sunnudagskvöldið 3. ágúst með Sparitónleikunum á Samkomuhúsflötinni og flugeldasýningu við Pollinn.

Fjöldi dagskrárliða hafa fest sig í sessi á síðustu árum og má þar nefna Óskalagatónleika Eyþórs Inga og Óskars Péturssonar í Akureyrarkirkju, Kirkjutröppuhlaupið, Mömmur og Möffins í Lystigarðinum, Dynheimaballið, Leikhópinn Lottu og ýmislegt fleira. Helstu söngbarkar þjóðarinnar munu ekki láta sig vanta til Akureyrar og fram koma m.a. Dúndurfréttir, Retro Stefsson, Magni Ásgeirs, Páll Óskar, Stjórnin (Sigga Beinteins & Grétar Örvars), Steindi JR, Kaleo, Úlfur Úlfur, 200.000 Naglbítar, Rúnar Eff og margir fleiri.

Auk ofangreindra atriða verður boðið upp á markað í miðbænum, ævintýralandið að Hömrum, fjölskyldudagskrá á Ráðhústorgi, tívolí, sirkus, söngkeppni unga fólksins, litbolta, vatnabolta og margt fleira.

„Yfirbragðið er vinalegt og við teljum frekar bros en fólk.  Við nýtum sögu og hefðir í bænum í dagskrágerð okkar og viljum að heimamenn og gestir séu virkir þátttakendur í hátíðarhöldunum. Bærinn verður rauður í samræmi við hjartað sem víða prýðir bæinn m.a. í umferðarljósunum.  Rauðar seríur, rautt skraut eða eitthvað rautt og fallegt á því afar vel við á Akureyri um Verslunarmannahelgina. Veitt verða verðlaun fyrir BEST SKREYTTU GÖTUNA OG BEST SKREYTTA HÚSIÐ. Við hvetjum fólk til þess að deila myndum með okkur á samfélagsmiðlum og merkja þær #rauttAK. Eins og fyrri ár er gert ráð fyrir þúsundum gesta sem leggja leið sína til Akureyrar til að gleðjast og skemmta sér með Akureyringum. Það stefnir því í afar skemmtilega fjölskylduhátíð þar sem bæjarbúar og gestir gleðjast á Einni með öllu,“ segir í tilkynningu.

Það eru Vinir Akureyrar í samvinnu við Akureyrarstofu/Akureyrarbæ sem standa fyrir Einni með öllu. Helstu bakhjarlar eru Goði,  Vífilfell og sjónvarpsstöðin N4.

Nýjast