Fjölbreytt dagskrá á Degi íslenskrar náttúru á morgun
Umhverfisráðherra mun veita fjölmiðlaverðlaun í tilefni dagsins, en ætlunin er að veita slík verðlaun árlega hér eftir. Eftirtalin eru tilnefnd til verðlaunanna nú:
- - Morgunblaðið fyrir vandaða og ítarlega umfjöllun um áhrif loftslagsbreyting á íslenska náttúru
- - Ragnar Axelsson ljósmyndari fyrir að beina sjónum að náttúruvernd og samspili manns og náttúru í verkum sínum.
- - Steinunn Harðardóttir stjórnandi útvarpsþáttarins Út um græna grundu á Rás 1 fyrir umfjöllun um íslenska náttúru, umhverfið og ferðamál
- - Svavar Hávarðsson blaðamður á Fréttablaðinu fyrir ítarlega umfjöllun um mengun sem ógnar náttúru og fólki
Ný háskólastofnun, Líf- og umhverfisvísindastofnun, tekur formlega til starfa við Háskóla Íslands kl. 14:00. Í framhaldi af setningarathöfn stofnunarinnar verður efnt til málþings um gildi íslenskrar náttúru og hefst það kl. 15:00 í Öskju. Erlendir sendiherrar munu ekki láta sitt eftir liggja því þeir munu vinna að endurbótum á gönguleið að Leiðarenda við Bláfjallaafleggjara. Er áætlað að þeir verði við vinnu frá kl. 13:30 til 16:30 en umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir hyggst koma við hjá þeim og leggja hönd á plóg um kl. 15:00. Almenningi gefst kostur á að taka til hendinni við náttúruvernd, nánar tiltekið við viðhald göngustíga á leiðinni upp Esjuna. Sjálfboðaliðar eru velkomnir til starfa kl. 13:00 - 17:00. Sem dæmi um viðburði má nefna að á Hvanneyri verður boðið upp á göngu um fuglaverndunarsvæðið í Andakíl en umhverfisráðuneytið undirbýr nú tilnefningu svæðisins á lista Ramsarsamningsins um vernd votlendis. Þá verður boðið upp á fyrirlestra um líffræðilega fjölbreytni í Borgum á Akureyri, Surtseyjarstofa í Vestmannaeyjum verður opin og Landgræðslan býður í göngu- og kynnisferð um uppgræðslusvæðið á Hólasandi norðan Mývatns.
Hér er fátt eitt nefnt en ítarlega dagskrá Dags íslenskrar náttúru er að finna á vef umhverfisráðuneytisins á slóðinni:
http://www.umhverfisraduneyti.is/dagur-islenskrar-natturu/dagskra/