Fjárhagsáætlun íþróttaráðs gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði rúmur 1,1 milljarður króna

Á síðasta fundi íþrótta voru lögð fram drög að fjárhagsáætlun ráðsins fyrir starfsárið 2011. Í áætluninni er gert ráð fyrir því að rekstrarkostnaður verði kr. 1.133.869.000 sem er kr. 40.703.000 hærra en rammi íþróttaráðs gerir ráð fyrir. Gert er ráð fyrir því í áætluninni að kr. 31.703.000 sem eru umfram ramma vegna húsaleigu og kr. 9.000.000 vegna framkvæmdasamnings við íþróttafélagið Þór verði bætt við rammann.  

Meirihluti íþróttaráðs samþykkti fyrirliggjandi drög fyrir sitt leyti. Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista sat hjá við afgreiðsluna og lagði fram eftirfarandi bókun: "Samfylkingin telur að leita hefði átt annarra leiða til hagræðingar en að leggja niður það fyrirkomulag að veita börnum frítt í sund og að hækka gjaldskrá Hlíðarfjalls umfram verðlagshækkanir en eðlilegt er að gjaldskrárhækkanir taki mið af almennum verðlagshækkunum. Samfylkingin telur ekki rétt að hverfa frá þeim markmiðum sem stefnt var að með því að veita börnum frítt í sund, það er að hvetja til sundiðkunar barna, ná til þeirra barna sem ekki stunda skipulagðar íþróttir eða hreyfingu og hinsvegar að koma til móts við efnaminni fjölskyldur."

Meirihluti íþróttaráðs lagði fram eftirfarandi bókun: "Ástæða hækkunar á gjaldskrám í Hlíðarfjalli og sundlaugum Akureyrar má fyrst og síðast rekja til þeirrar hagræðingarkröfu sem fyrir liggur vegna starfsársins 2011. Meirihluti íþróttaráðs hefur ákveðið að velja frekar þann kost að hækka gjaldskrár stofnana íþróttaráðs en að skerða þjónustustig þeirra."

Nýjast