Fitjað upp við messu n.k. sunnudag

Það verður svo sannarlega  fitjað upp í sunnudagsmessu í Akureyrarkirkju n.k sunnudag
Það verður svo sannarlega fitjað upp í sunnudagsmessu í Akureyrarkirkju n.k sunnudag

Það er óhætt að fullyrða að fitjað verður upp á nýjung við messu n.k sunnudag í Akureyrarkirkju.  Séra Hildur Eir mun flytja prjónapredikun og tónlistin mun vera og hlý og góð, já  bara eins  og  ullarpeysa.   

 Þær Sveina Björk Jóhannesdóttir og Ragnheiður Jakobsdóttir eigendur hannyrðarverslunarinnar Garn í gangi segja okkur frá tilurð búðarinnar og hvaða þýðingu prjónaskapur hefur fyrir þeirra líf.

Garn í gangi býður upp á góða prjónauppskrift í kirkjubekkjum og er söfnuðurinn hvattur til að taka með sér handvinnu til að sinna á meðan messan fer fram.

Alls ekki víst að þessi stund verði endilega bara slétt  og snúið.


Athugasemdir

Nýjast