Starfsmenn Gámaþjónustu Norðurlands björguðu lífi fimm kettlinga sem flækingslæða gaut á athafnasvæði fyrirtækisins. RÚV sagði frá þessu. Kettirnir eru nú í góðu yfirlæti hjá kattavini á Akureyri en einn er reyndar búinn að fá gott heimili á Húsavík.
Í fréttinni kemur fram að algengt sé að kettir flækist inn á svæði Gámaþjónustunnar. Starfsmenn Gámaþjónustunnar höfðu samband við Kisukot á Akureyri þegar þeir sáu að kettlingar voru farnir að hlaupa um svæðið.
Þaðtók tíu daga að fanga alla kettina en Arna Einarsdóttir sagði í samatali við RÚV að kettlingarnir hefðu varla lifað af í frostinu ef þeim hefði ekki verið náð. Hún telur því að starfsmenn Gámaþjónustunnar hafi bjargað lífi þeirra.
Búið er að bólusetja og ormahreinsa kettina og hefur Arna verið að koma þeim til fjölskyldna á Akureyri og sem fyrr segir endaði einn á Húsavík og fékk nafnið Njáll.