FIMAK vann 39 verðlaun

Seinni hluti haustmóts Fimleikasambands Íslands í áhaldafimleikum fór fram á Akureyri um liðna helgi. Keppt var í 3.-5. þrepi íslenska fimleikastigans bæði í drengja og stúlknaflokki og voru þáttakendur á mótinu á fjórða hundrað. Fimleikafélag Akureyrar átti 29 keppendur sem náðu góðum árangri og fengu alls 39 medalíur. 

Í 3. þrepi stúlkna fékk Rakel Sjöfn Stefánsdóttir 3. sæti á stökki í flokki 12 ára. Í flokki 13 ára og eldri fékk Kolfinna Frigg Sigurðardóttir 3. sæti í fjölþraut á gólfi og á tvíslá og 2. sæti á stökki. Amanda Helga Elvarsdóttir fékk 1. sæti á stökki og Rakel Róbertsdóttir 3. sæti á jafnvægisslá.

Í 4. þrepi stúlkna flokki 11 ára fékk Bjarney Sara Bjarnadóttir 2. sæti í fjölþraut og á stökki og 3. sæti á jafnvægisslá. Sesselja Sif Óðinsdóttir fékk 1. sæti á stökki og Mary Lind Rúnarsdóttir 3. sæti á stökki. Í flokki 12 ára og eldri fékk Petra Reykjalín 2. sæti í fjölþraut og 1. sæti á stökki og Þórey Edda Þorleifsdóttir fékk 3. sæti á jafnvægisslá.

Í 4. þrepi drengja fékk Ólafur Stefán Oddsson Cricco 3. sæti í stökki í flokki 11 ára. Í flokki 12 ára og eldri sigraði Ögri Harðarson í fjölþraut þar sem hann náði 1. sæti á gólfi, stökki, tvíslá og svifrá. Þá varð hann í 2. sæti á bogahesti og 3. sæti fyrir hringi.

Í 5. þrepi stúlkna í flokki 11 ára og eldri fékk Guðbjörg Heiða Stefánsdóttir 2. sæti í fjölþraut, 1. sæti fyrir gólf og 3. sæti á stökki og jafnvægisslá.

Í 5. þrepi drengja í flokki 9 ára fékk Birgir Valur Ágústsson 2. sæti fyrir fjölþraut, svifrá, hringi og bogahest og 3. sæti fyrir gólf og tvíslá. Í flokki 10 ára sigraði Breki Harðarson í fjölþraut þar sem hann hafnaði í 1. sæti á gólfi, bogahesti, hringjum, tvíslá og svifrá og 3. sæti á stökki.

Nýjast