Fíkniefnamál á Akureyri

Lögreglan á Akureyri handtók karl og konu í morgun vegna gruns um fíkniefnamisferli. Í húsleit sem gerð var í kjölfarið lagði lögreglan hald á yfir 30 grömm af kannabisefni sem að grunur er á að hafi verið ætlað til sölu. Aðilar málsins voru yfirheyrðir og sleppt að lokinni yfirheyrslu. Málið telst upplýst.  

Við aðgerðina naut lögreglan á Akureyri liðstyrks sérsveitarmanna frá embætti Ríkislögreglustjóra. Fyrrnefnd aðgerð var liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna. Lögreglan vill minna á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.  Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Nýjast