Hætt hefur verið við allar áætlunarferðir sem áttu að fara frá Akureyri til Dalvíkur og Ólafsfjarðar í dag vegna óveðursins. Áætlunarbíllin sem fara átti frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur sneri við vegna óveðurs í Þrengslum og hefur ferðin verið felld niður. Ferðinni frá Reykjavík á Snæfellsnes hefur ekki verið frestað og fer bíllinn kl. 17:30 að öllu óbreyttu.