„Fer full tilhlökkunar inn í starfið“

„Starfið sameinar reynslu og þekkingu sem ég hef öðlast sem tónlistarmaður, bæði sem hljóðfæraleikar…
„Starfið sameinar reynslu og þekkingu sem ég hef öðlast sem tónlistarmaður, bæði sem hljóðfæraleikari og konsertmeistari, sem tónlistarkennari og verkefnastjóri,“ segir Lára Sóley. Mynd/Daníel Starrason.

"Starfið leggst afskaplega vel í mig. Það er mikil ábyrgð sem því fylgir að vinna hjá þjóðarhljómsveit Íslendinga sem hefur verið á mikilli siglingu undanfarið bæði innanlands sem utan. Ég fer full tilhlökkunar inn í starfið og hlakka til að vera partur af flaggskipi íslenskrar menningar,“ segir Lára Sól­ey Jóhanns­dóttir sem hefur verið ráðinn í stöðu fram­kvæmda­stjóra Sin­fóníu­hljóm­sveitar Ís­lands.

Lára Sól­ey er fiðlu­leikari og hefur starfað sem tón­listar­maður og sjálf­stætt starfandi verk­efna­stjóri undan­farin ár. Á árunum 2010-2014 var hún verk­efna­stjóri við Menningar­húsið Hof og gegndi starfi fram­kvæmda­stjóra Hofs í af­leysingum. Hún hefur verið kon­sert­meistari Sin­fóníu­hljóm­sveitar Norður­lands og fram­kvæmda­stjóri Sumar­tón­leika í Akur­eyrar­kirkju. Lára Sól­ey er með BMus próf frá Royal Welsh College of Music and Drama og er að ljúka meistara­námi í lista­stjórnun við sama há­skóla.

Draumastarfið

En er Lára komin í draumastarfið?

„Já, ekki spurning. Starfið sameinar reynslu og þekkingu sem ég hef öðlast sem tónlistarmaður, bæði sem hljóðfæraleikari og konsertmeistari, sem tónlistarkennari og verkefnastjóri. Námið sem ég hef stundað í listastjórnun í Royal Welsh College of Music and Drama frá því síðasta haust hefur svo byggt enn frekar ofan á þessa reynslu, en námið miðar að því að undirbúa nemendur undir stjórnunarstörf innan menningarstofnanna,“ segir Lára Sóley. „Nýju fólki fylgja nýjar áherslur en ég er er full aðdáunar yfir því frábæra starfi sem SÍ hefur unnið á síðustu árum. Ég vil tryggja að velgengnin haldi áfram og samtal við þjóðina eflist.“

Lærdómsríkur tími í Wales

Ráðið er í stöðu fram­kvæmda­stjóra Sin­fóníu­hljóm­sveitar Ís­lands til fjögurra ára í senn og tekur Lára við starfinu þann 1. ágúst næst­komandi. Lára hefur verið búsett í Wales undanfarið ár ásamt fjölskyldu sinni þar sem hún hefur stundað nám en fjölskyldan mun nú flytja til Reykjavíkur í sumar. Lára er gift Hjalta Jónssyni sálfræðingi og tónlistarmanni og saman eiga þau þrjú börn. Hún segir fjölskylduna hafa notið verunnar í Wales.

„Þetta hefur verið dásamlegur og lærdómsríkur tími fyrir okkur öll. Öllum hefur gengið vel að aðlagast. Krakkarnir hafa bæði þurft að læra ensku og veilsku og hafa staðið sig alveg frábærlega. Við höfum eignast mikið af vinum og kynnst nýju fólki en á sama tíma hefur dvölin þjappað okkur enn meira saman. En við erum öll mjög spennt að flytja aftur til Íslands. Við hefðum alveg getað hugsað okkur að vera lengur en tækifæri sem þessi bjóðast ekki á oft. Það verður yndislegt að vera nær fjölskyldunni og vinunum á Íslandi,“ segir Lára Sóley.  


Athugasemdir

Nýjast