Félagar í Samfylkingunni á Akureyri gagnrýna þingmenn flokksins

Þrettán félagar Samfylkingarinnar á Akureyri, þar á meðal Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi og Logi Már Einarsson varaþingmaður, hafa sent frá sér yfirlýsingu, þar sem þeir harma að þingmönnum flokksins bar ekki gæfa til að standa saman um að taka tillögu Sjálfstæðisflokksins um hið svonefnda Landsdómsmál af dagskrá þingsins enda Alþingi búið að afgreiða málið til dómstóla. Undirritaðir lýsa ennfremur furðu sinni á að þingmenn flokksins í kjördæminu sáu enga ástæðu í þessu viðkvæma máli til að ræða afstöðu sína við stuðningsmenn flokksins rétt eins og hún sé þeirra einkamál. 

Opin og gagnsæ umræða er undirstaða þess að flokknum takist að ná því markmiði að skapa lýðræðislegra þjóðfélag með opinni og skapandi umræðu.

Ragnar Sverrisson

Guðný Hrund Karlsdóttir

Tryggvi Gunnarsson

Hallur Heimisson

Unnar Jónsson

Jóhann Jónsson

Logi Már Einarsson

Pétur Maack Þorsteinsson

Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir

Jón Ingi Cæsarsson

Valdís Anna Jónsdóttir

Sædís Gunnarsdóttir

Hermann J. Tómasson

 

Nýjast