Þrettán félagar Samfylkingarinnar á Akureyri, þar á meðal Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi og Logi Már Einarsson varaþingmaður, hafa sent frá sér yfirlýsingu, þar sem þeir harma að þingmönnum flokksins bar ekki gæfa til að standa saman um að taka tillögu Sjálfstæðisflokksins um hið svonefnda Landsdómsmál af dagskrá þingsins enda Alþingi búið að afgreiða málið til dómstóla. Undirritaðir lýsa ennfremur furðu sinni á að þingmenn flokksins í kjördæminu sáu enga ástæðu í þessu viðkvæma máli til að ræða afstöðu sína við stuðningsmenn flokksins rétt eins og hún sé þeirra einkamál.
Opin og gagnsæ umræða er undirstaða þess að flokknum takist að ná því markmiði að skapa lýðræðislegra þjóðfélag með opinni og skapandi umræðu.
Ragnar Sverrisson
Guðný Hrund Karlsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Hallur Heimisson
Unnar Jónsson
Jóhann Jónsson
Logi Már Einarsson
Pétur Maack Þorsteinsson
Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir
Jón Ingi Cæsarsson
Valdís Anna Jónsdóttir
Sædís Gunnarsdóttir
Hermann J. Tómasson