19. apríl, 2011 - 16:19
Fréttir
Undanfarna daga hafa borist þó nokkrar tilkynningar til lögreglunnar á Akureyri um að farið hafi verið inn í ólæstar bifreiðar og
húsnæði víða um bæinn. Rótað hefur verið í bifreiðum og í því húsnæði sem farið hefur verið
inn í en litlum verðmætum stolið. Ekki hefur verið um innbrot að ræða í þessum tilvikum heldur einungis farið inn þar sem fólk
hefur ekki læst bifreiðum eða híbýlum sínum.
Ekki hefur tekist að hafa hendur í hári þeirra sem þarna hafa verið að verki. Því vill lögreglan minna fólk á að
læsa bifreiðum sínum og híbýlum og vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum mannaferðum og hafa þegar samband við lögreglu ef það
verður vart við eitthvað slíkt í síma 464 7700 eða í gegnum Neyðarlínuna í 112.