Farandsýning um kvenréttindabaráttu síðustu 100 ára verður opnuð í dag þann 1.maí í Hofi á Akurri og er hún á vegum Kvenréttindafélags Íslands í samvinnu við Akureyrarbær og Menningarfélag Akureyrar. Sýningin samanstendur af 8 stórum veggspjöldum, myndskreyttum með stuttum texta á ensku og íslensku.
Sýningin er í tíma- og þemaröð þar sem sagt er frá kvenfélögum,baráttunni fyrir kosningarétti,verkalýðsbaráttunni, kvennafrídeginum og rauðsokkunum, Kvennalistanum og kvennaframboðum 9. áratugarins, Vigdísi Finnbogadóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur, listum kvenna og framtíð jafnréttisbaráttunnar.
Sýningin, sem var fyrst sett upp á samnorrænu jafnréttisráðstefnunni í Svíþjóð sl. sumar, fer nú hring um landið með viðkomu í hinum ýmsu sveitarfélögum og endar í Reykjavík í desember.
Sýningin stendur yfir í Hofi frá 1.-15.maí