Á Íslandi höfðu 44% nýnema á framhaldsskólastigi árið 2003 brautskráðst á réttum tíma, þ.e. innan fjögurra ára frá upphafi náms. Aðeins í Lúxemborg höfðu færri nemendur lokið námi á framhaldsskólastigi á tilskildum tíma, 41% nemenda, en þar í landi er algengt að nemendur þurfi að endurtaka námsár í skóla. Tveimur árum síðar höfðu 71% nýnema í Lúxemborg brautskráðst en 58% íslenskra, og er Ísland þar í neðsta sæti þeirra 11 OECD-ríkja sem höfðu sambærilegar tölur.
Að meðaltali höfðu 68% nýnema á framhaldsskólastigi í OECD löndunum brautskráðst á réttum tíma. Tveimur árum eftir að námi átti að vera lokið hafði hlutfall brautskráðra hækkað í 81%. Þess skal getið að framhaldsskólanám er mislangt í OECD-ríkjunum. Algengt er að það sé 3 ár, en í sumum löndum er það 2 ár, í öðrum 4 ár eins og á Íslandi. Þá eru nemendur á Íslandi eldri en í flestum öðrum OECD-löndum þegar þeir ljúka framhaldsskóla á réttum tíma.
Í öllum OECD-löndunum sem hafa sambærileg gögn hefur hærra hlutfall kvenna en karla lokið framhaldsskólastigi á réttum tíma. Að meðaltali ljúka 73% kvenna og 63% karla námi á réttum tíma. Á Íslandi er meiri munur á milli kynjanna, þar sem 52% kvenna og 36% karla brautskráðust á réttum tíma. Þá er algengara í OECD-löndunum að nemendur ljúki almennu bóknámi á réttum tíma en starfsnámi. Þannig luku 76% nemenda á bóknámsbrautum námi sínu á tilskildum tíma í OECD-löndunum en 55% nemenda á starfsnámsbrautum. Á Íslandi er svo til enginn munur á milli hlutfalls nemenda í bóknámi og starfsnámi sem ljúka námi á réttum tíma. Ástæðan er m.a. sú að hægt er að ljúka fjölmörgum stuttum starfsnámsbrautum, en til að ljúka bóknámi þarf yfirleitt að ljúka 4 ára námi.
Haustið 2003 voru 4.328 nýnemar í dagskóla á framhaldsskólastigi á Íslandi. Fjórum árum síðar höfðu 44% nýnemanna verið brautskráðir úr námi á framhaldsskólastigi sem var að minnsta kosti tvö ár að lengd. Um 30% nýnemanna höfðu þá hætt námi eða tekið sér tímabundið hlé án þess að vera brautskráðir en 26% voru enn í námi án þess að hafa brautskráðst. Þetta eru mjög svipaðar tölur og árið áður, þegar 45% nýnema höfðu verið brautskráðir fjórum árum eftir upphaf náms, þó að nýnemum hefði fjölgað um 346 á milli áranna 2002 og 2003. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofunni.