Fær parhúsalóðir við Lágholt og Hraunholt

Við upphaf framkvæmda í Holtahverfi. Mynd/epe
Við upphaf framkvæmda í Holtahverfi. Mynd/epe

PCC Seaview Residences ehf hefur lagt inn umsóknir um byggingalóðir að Hraunholti 2-20 og við Lágholt 1-12, til uppbyggingar parhúsa.

Skipulags- og umhverfisnefnd Norðurþings hefur lagt til við sveitarstjórn að PCC Seaview Residences verði úthlutað lóð­unum með fyrirvara um endanlegan frágang deiliskipulags svæðisins.

Næsta haust er gert ráð fyrir að umrædd parhús verði tilbúin til afhendingar starfsmönnum PCC BakkiSilicon sem þau vilja leigja á sanngjörnu verði. Í fyrsta áfanga verða húsin 22 en síðar er gert ráð fyrir að byggð verði 20 parhús til viðbótar. JS

Nýjast