Um helgina samþykktu tvö kjördæmisþing Framsóknarflokksins tillögu um að boða ætti til flokksþing fyrir kosningar þar sem ný forysta verður kosin. Í kjördæmi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Norðausturkjördæmi var tillagan felld. Sigmundur Davíð greiddi sjálfur atkvæði gegn tillögunni.
Eygló Harðardóttir, velferðarráðherra, segir mjög marga í grasrót flokksins vilja sjá flokksþing fyrir kosningar og mikilvægt sé að forystan endurnýi umboð sitt. Eygló er sammála þeim aðilum sem hafa talað fyrir því að boða til flokksþings fyrir kosningar. „Framsóknarflokkurinn hefur alltaf haft gott af því að halda flokksþing fyrir kosningar þar sem línur eru lagðar,“ segir Eygló í samtali við Vísi.is
„Ég er í forystusveit flokksins og verði boðað til flokksþings þarf hver og einn að meta stöðu sína og hlusta á grasrótina,“ segir Eygló þegar hún er spurð að því hvort hún ætli að bjóða sig fram til formanns komi til flokksþings. „Nú er fókusinn á húsnæðismálunum og ég mun fara á Vesturland til að ræða húsnæðismál og þyrfti líka að fara til Akureyrar að ræða húsnæðismál,“ bætir Eygló við.
Formaður Framsóknarflokksins er með útspili sínu á kjördæmaþingi flokksins í Norðausturkjördæmi að hugsa um eigin hag og sé í ferð að bjarga sínu eigin pólitíska lífi með að komast hjá flokksþingi fyrir kosningar. Það sé svo álitamál hvert sú ferð fari saman við hagsmuni flokksins, segir Grétar Þór Eyþórsson, Prófessor í stjórnmálafræðum við Háskólann á Akureyri við Vísi.is. Ljóst er að staða hans sé ekki mjög sterk á landsvísu.
„Það er alveg á hreinu að Sigmundur og stuðningsmenn hans vilja ekki flokksþing fyrir kosningar. Þess vegna er hann væntanlega að þæfa mál þannig að það verði ekki haldið flokksþing fyrr en eftir kosningar. Þarna eru uppi átök og er Sigmundur Davíð að bjarga sínum pólitíska heiðri með að hrökklast ekki frá völdum sem formaður á flokksþingi,“ segir Grétar Þór.