Eyfirski safnadagurinn tileinkaður börnum að þessu sinni

Alls munu 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 7. maí frá kl 11-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í fimmta sinn. Markmiðið með þessum degi er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu og áhugaverðu safnaflóru sem Eyjafjörður hefur upp á að bjóða.  

Safnadagurinn er að þessu sinni tileinkaður börnum. Þau verða því í fyrirrúmi hvað varðar dagskrá safnanna. Söngvar, sýningar, leikir, listasmiðja, leikföng, dúkkur, dúkkulísur, flugvélar, fuglar, þorskhausar, hákarl, ratleikir, gamaldags bú er meðal þess sem gestir safnanna stórir og smáir heyra, upplifa, taka þátt og njóta á Eyfirska safnadaginn.

Rútuferðir fara með þá sem vilja á söfnin við Eyjafjörð.  Safnarúta 1: fer frá Akureyri kl 10 með viðkomu byggðasafninu Hvoli á Dalvík, náttúrgripasafni Ólafsfjarðar, Síladarminjasafni Íslands og Þjóðlagasetri sr Bjarna Þorsteinssonar. Safnarúta 2: fer frá Akureyri kl 12:30 í Útgerðarminjasafnið á Grenivík og svo í Gamla bæinn Laufás. Áhugasömum er bent á vefsíðuna http://www.sofn.is/ þar sem finna má nánari upplýsingar um það sem um er að vera þennan dag og brottfararstað safnarútnanna tveggja.

Eftirfarandi söfn verða opin frá 11-17, enginn aðgangseyrir. Amtsbókasafnið, Davíðshús, Flugsafn Íslands, Iðnaðarsafnið á Akureyri, Leikfangasýning Friðbjarnarhúsi Akureyri,  Listagilið: sýning í Gallerý Boxi,  Minjasafnið á Akureyri, Nonnahús, Byggðasafnið Hvoll á Dalvík, Gamli bærinn Laufás, Holt - hús Öldu Halldórsdóttur í Hrísey,  Hús Hákarla-Jörundar í Hrísey, Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði, Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Eyjafjarðarsveit, Útgerðarminjasafnið á Grenivík og Þjóðlagasetrið  á Siglufirði.

Nýjast