Erill hjá lögreglunni á Akureyri um helgina

Talsverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri um sl. helgi og komu um 70 mál inn á borð hennar af ýmsum toga. Síðastliðinn föstudag þann 1. júní var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Um var að ræða karlmann á þrítugsaldri og í ljós kom að hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum og var því án þeirra. Hann hafði í fórum sínum lítilræði af kannabisefnum. Aðfararnótt laugardags var karlmaður á þrítugsaldri handtekinn á Dalvík grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og auk þess grunaður um ölvun við akstur. Skömmu áður en hann var handtekinn hafði hann ekið bifreið sinni utan í vegg Múlaganga á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og ekið þaðan með einn hjólbarðann loftlausan. Við leit á manninum fundust um rúmlega 20 grömm af kannabisefnum og í framhaldinu var farið í húsleit heima hjá honum þar sem fundust nokkur grömm af kannabisefnum í viðbót.

Sömu nótt var síðan karlmaður á fertugsaldri handtekinn grunaður um ölvun við akstur eftir að hafa fallið á óskráðu og ótryggðu torfærubifhjóli á göngustíg við Giljaskóla á Akureyri. Hann var fluttur á slysaseild til aðhlynningar en meiðsli hann reyndust minni háttar. Hann hafði ekki réttindi til aksturs hjólsins og notaði auk þess engan hlífðarbúnað, hvorki hjálm né annað. Sömu nótt var síðan einn karlmaður í viðbót á fertugsaldri handtekinn á Dalvík grunaður um akstur undir áhrifum fíknefna, ölvun við akstur og auk þess hafði hann áður verið sviptur ökuréttindum.

Í gærdag var síðan karlmaður á fertugsaldri handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Á sunnudagsmorgun var síðan maður handtekinn eftir að hafa valdið talsverðum skemmdum á íbúð í miðbæ Akureyrar. Í fórum hans fannst smáræði af kannabisefnum. Í hádeginu í gær var síðan tilkynnt um rán í Akureyrarapóteki í Kaupangi á Akureyri. Þar hafði maður og kona ruðst inn í apótekið með grímur fyrir andlitinu og kúbein að vopni. Til átaka kom á milli þessara aðila og starfsmanns apóteksins, sem hlaut minni háttar áverka á höfði, og reyndi maðurinn og konan síðan að flýja af vettvangi en voru handsömuð af vegfarendum sem leið áttu hjá og var þeim haldið þar til lögregla kom á vettvang. Um er að ræða einstaklinga á þrítugsaldri sem marg oft hafa komið við sögu lögreglu áður. Þau voru bæði í mjög annarlegu ástandi og fannst lítilræði af fíkniefnum á karlmanninum. Þau voru vistuð í fangageymslu og farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim.

 

Nýjast